Jólakortið 2005 er hannað af Emilíu Erlu Ragnarsdóttur grafískum hönnuði í hönnunardeild prentsmiðjunnar Odda. Kortið er gyllt og silfurlitað og ber mynd af Barnaspítala Hringsins og verndarengli hans.
Kortin eru seld í 5 eða 10 stk. pökkum með hvítum umslögum á kr. 500 eða kr. 1000 pakkinn.
Kortin verða til sölu í mörgum verslunum Lyf og heilsu, Hagkaupum, á nokkrum stöðum á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, meðal annars á barnaspítalanum.
Fyrirtæki og aðrir sem þurfa mikinn fjölda af kortum geta sent pöntun í tölvupósti á póstfangið hringurinn@simnet.is.
Einnig má lesa inn pöntun á símsvara félagsins í síma 551 4080.