Hörður Jónasson er einn af traustum blóðgjöfum Blóðbankans, á dögunum gaf hann blóð í 51 skipti og tók frænku sína með sér. Þá var í gangi lukkuleikur fyrir blóðgjafa og gátu þeir blóðgjafar tekið þátt sem hvöttu vini og ættingja til að koma og gefa í fyrsta skiptið. Hörður var dreginn úr hópi góðra blóðgjafa og gaf Og Vodafone honum Nokia 6101 GSM síma.
Hörður segist alltaf líða vel eftir blóðgjöf og það sé gott að geta hjálpað öðrum með jafn einfaldari leið. Hörður sagðist hvetja sér yngri vini og ættingja til að gefa blóð því þetta er mikilvægt málefni sem nauðsynlegt er að styrkja því sumt er ekki hægt að kaupa " og svo er hérna besta kaffihús bæjarins" bætti hann við og kímdi.
Á myndinni eru: Baldvina Snælaugsdóttir starfsmaður Og Vodafone, Hörður Jónasson blóðgjafi og Auður Helgadóttir starfsmaður Blóðbankans.