Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað framkvæmdanefnd vegna byggingar nýs Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Framkvæmdanefndin hefur yfirumsjón með undirbúningi framkvæmda og mannvirkjagerð á lóð spítalans.
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi er formaður nefndarinnar en aðrir nefndarmenn eru
Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur,
Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri,
Magnús Pétursson forstjóri,
Kristín Ingólfsdóttir rektor,
Ragnheiður Haraldsdóttir skrifstofustjóri og
Björn Ingi Sveinsson verkfræðingur.
___________________________________________________________