Hildur Þóra Hallbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á meltingar- og nýrnadeild 13E lyflækningasviðs I frá 1. janúar 2006. Hún mun þó starfa á skilunardeild að hluta til samhliða deildarstjórastarfinu fyrstu mánuðina meðan á undirbúningi að opnun deildarinnar stendur.
Meltingar- og nýrnadeild á 13E við Hringbraut verður 22 rúma lyflækningadeild fyrir sjúklinga með sjúkdóma í meltingarfærum og nýrum og hefst starfsemi deildarinnar í maí 2006 eftir endurbætur á húsnæði.
Ráðning Hildar Þóru er á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefnd hjúkrunarráðs LSH og viðtals.
Hjúkrunardeildarstjórar á LSH starfa samkvæmt starfslýsingu.