Stjórnarmenn í stuðningsmannaklúbbi Manchester United á Íslandi fengu ábendingu þess efnis að áritaðar treyjur frá Chelsea og Liverpool færu í unglingaherbergi Barnaspítalans. Þeir brugðust því hratt og örugglega við og færðu Barnaspítalanum áritaða treyju Manchester United liðsins, innrammaða og tilbúna til uppsetningar.
Treyjunni hefur verið komið fyrir í unglingaherbergi Barnaspítalans.
Barnaspítali Hringsins kann þeim félögum bestu þakkir fyrir.