Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri heimsóttu 300 þúsundasta Íslendinginn á fæðingardeild LSH í dag, þriðjudaginn 10. janúar 2006.
Litli drengurinn fæddist þar í gær og var 3480 grömm og 52 sentimetrar. Foreldrarnir eru Erla María Andrésdóttir og Haraldur Arnarson frá Keflavík og þetta var fyrsta barn þeirra.
Gestirnir afhentu foreldrunum skjal sem staðfestir að með fæðingu litla drengsins þeirra séu Íslendingar orðnir 300 þúsund.
Forsætisráðherra og hagstofustjóri heimsóttu 300 þúsundasta Íslendinginn
Þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn fékk Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrím Snorrason hagstofustjóra í heimsókn til sín á fæðingardeild LSH í dag.