Þar skemmti fjöldi landskunnra listamanna og mörg fyrirtæki lögðu góðu málefni lið. Þetta framlag kemur sér vel í nýbyggingarsjóðinn sem stækkar stöðugt þótt enn vanti nokkuð á að hægt sé að taka skóflustungu að nýju göngudeildarhúsi.
Fjörgyn hefur haldið alls þrenna slíka stórtónleika á síðustu þremur árum til styrktar BUGL og þannig safnað tæplega 3,8 milljónum króna.