Aðalsteinn Pálsson sviðsstjóri byggingarsviðs, hefur verið settur framkvæmdastjóri tækni og eigna frá 1. apríl til 30. september 2006. Aðalsteinn er verkfræðingur og hefur starfað við Landspítala frá árinu 1993 og sem sviðsstjóri byggingarsviðs á skrifstofu tækni og eigna frá árinu 2000. |
||
Að ósk heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins mun Ingólfur Þórisson framkvæmdastjóri, starfa sem verkefnisstjóri hins nýja spítala til jafnlengdar. Hann mun vinna að þarfagreiningu nýs spítala og endurskoðun á fyrirliggjandi skipulagstillögum. |
Ingólfur verður verkefnisstjóri nýja spítalans en Aðalsteinn framkvæmdastjóri tækni og eigna á meðan
Aðalsteinn Pálsson sviðsstjóri byggingarsviðs hefur verið settur framkvæmdastjóri tækni og eigna til 30. september 2006. Ingólfur Þórisson verður þann tíma verkefnisstjóri nýja spítalans.