Háskóli Íslands hefur veitt 32 starfsmönnum Landspítala - háskólasjúkrahúss, sem sinna rannsóknum og kennslu, akademíska nafnbót við athöfn þriðjudaginn 2. maí 2006. Þetta var í þriðja sinn sem skólinn veitir akademískar nafnbætur með þessum hætti á grundvelli reglna sem byggjast á samstarfssamningi HÍ og LSH. Í þeim felst viðurkenning Háskóla Íslands á akademísku hæfi þeirra starfsmanna sem hljóta nafnbótina.
Veittar voru 27 akademískar nafnbætur í læknadeild, 4 í hjúkrunarfræðideild og 1 í félagsvísindadeild (í sálfræði).
Læknadeild: Aðalbjörn Þorsteinsson læknir - klínískur dósent Alma D. Möller læknir - klínískur dósent Arnór Víkingsson læknir - klínískur lektor Bertrand A. M. Lauth læknir - klínískur dósent Davíð Ottó Arnar læknir - klínískur prófessor Eysteinn Pétursson eðlisfræðingur - klínískur lektor Gerður María Gröndal læknir - klínískur dósent Gestur Þorgeirsson læknir - klínískur dósent Guðmundur Geirsson læknir - klínískur dósent Gunnlaugur Sigfússon læknir - klínískur dósent Halldór Kolbeinsson læknir - klínískur dósent Halldóra Ólafsdóttir læknir - klínískur lektor Hallgrímur Guðjónsson læknir - klínískur dósent Haraldur Sigurðsson læknir - klínískur dósent Helga Erlendsdóttir meinatæknir - klínískur prófessor Helga Hannesdóttir læknir - klínískur prófessor Helgi H. Sigurðsson læknir - klínískur lektor Jón Baldursson læknir - klínískur lektor Óttar Guðmundsson læknir - klínískur lektor Páll E. Ingvarsson læknir - klínískur dósent Pétur Luðvigsson læknir - klínískur dósent Ragnar Danielsen læknir - klínískur prófessor Sigurbjörn Birgisson læknir - klínískur lektor Sigurður Egill Þorvaldsson læknir - klínískur dósent Tryggvi B. Stefánsson læknir - klínískur dósent Þóra Steingrímsdóttir læknir - klínískur dósent Þorbjörn Jónsson læknir - klínískur prófessor |
Félagsvísindadeild: María K. Jónsdóttir sálfræðingur - klínískur dósent Hjúkrunarfræðideild: Anna Ólafía Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur - klínískur lektor Arna Skúladóttir hjúkrunarfræðingur - klínískur lektor Elísabet Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur - klínískur lektor Hildur Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur - klínískur lektor |