Hjartadeild 14E/G verður formlega skipt í tvær deildir mánudaginn 15. maí 2006, hjartadeild E á gangi 14E og hjartadeild G á gangi 14G.
Deildarstjóri á hjartadeild E verður Unnur Sigtryggsdóttir en hún stýrði áður hjartadeild 14E/G og á hjartadeild G verður Kristín Sigurðardóttir deildarstjóri.
Meltingar- og nýrnadeild undir stjórn Hildar Þ. Hallbjörnsdóttur verður einnig starfrækt á gangi 14G í sumar.