Frá eitrunarmiðstöð LSH um klórgas:
Klórgas er eitruð lofttegund sem myndast þegar klór og sýra blandast saman.
Hversu mikið gas myndast fer eftir magni efnanna. Til dæmis má nefna að
blöndun efna sem algeng eru á heimilum, þ.e. bleikiklórs og salernishreinsiefna,
getur leyst þessa eitruðu lofttegund úr læðingi og valdið þeim sem vinnur með
efnin óþægindum. Þó er lítil hætta á að alvarleg eitrun hljótist af í svona
tilfellum nema verið sé að vinna með óvenju mikið af efnunum eða í lengri tíma.
Hætta á eitrun er einkum við innöndun eða beina snertingu við gufurnar
Eitrunareinkenni koma fljótt í ljós og eru sviði í augum og tárarennsli,
sviði í nefi, hálsi og munni, hósti og öndunarerfiðleikar. Í alvarlegum tilfellum
getur efnið valdið lungnabjúg.
Ef fólk andar að sér klórgasi er mikilvægt að fara út í ferskt loft sem
allra fyrst og ef framangreind einkenni koma fram skal leita læknis eða hringja
í eitrunarmiðstöðina og leita ráða.