Handbók í lyflæknisfræði er komin út.
Þetta er þriðja útgáfa handbókarinnar,
ritstjórar eru Ari J. Jóhannesson og Runólfur Pálsson læknar
á Landspítala - háskólasjúkrahúsi sem styrkir útgáfuna.
Útgáfu og dreifingu annast Háskólaútgáfan.
Bókin er í A-5 broti.
Í formála bókarinnar segir m.a:
Sem fyrr er það höfuðmarkmið með Handbók í lyflæknisfræði að draga saman á einn stað aðgengilegar og hagnýtar leiðbeiningar um skynsamlega nálgun og meðferð vandamála í lyflækningum þar sem mið er tekið af aðstæðum á Íslandi. Aðaláherslan er á algeng og/eða bráð vandamál og er reynt eftir megni að samræma kröfur um knappan texta en jafnframt tæmandi efnistök.
Bókin ætti að nýtast breiðum hópi lesenda, t.d. lyflæknum, heilsugæslulæknum, læknanemum og læknum í framhaldsnámi og ýmsum öðrum heilbrigðisstarfsmönnum.
Handbók í lyflæknisfræði er til sölu hjá Bóksölu stúdenta, bókaverslunum Pennans, bókaverslunum Eymundsson, bókaverslunum Máls og menningar og Bókvali á Akureyri.