Jens A. Guðmundsson hefur verið ráðinn til að gegna starfi yfirlæknis kvensjúkdómadeildar á kvennasviði Landspítala - háskólasjúkrahúss frá og með 1. ágúst 2006.
Ráðningin var á grundvelli umsóknar um stöðuna, umfjöllunar í stöðunefndum landlæknisembættisins og læknaráðs LSH, viðtals og að fenginni umsögn stjórnarnefndar LSH.
Yfirlæknir kvensjúkdómadeildar starfar samkvæmt starfslýsingu.