Frá starfsfólki slysa- og bráðadeildar:
Nú standa yfir miklar og kærkomnar endurbætur á slysa- og bráðadeild á Landspítala Fossvogi sem verða til mikilla hagsbóta fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk. Ekki verður komist hjá því að sjúklingar og aðrir verði fyrir óþægindum meðan á framkvæmdunum stendur en það verður mestan hluta ársins 2007. Starfsfólk slysa- og bráðadeildar biðst velvirðingar á því ónæði sem kann að skapast vegna endurbótanna og væntir skilnings á þessum aðstæðum.