Lionsklúbburinn Freyr hefur fært deild R-2 á Landspítala Grensási að gjöf tvær loftdýnur til sértækra sáravarna. Dýnurnar eru af gerðinni Auta Logic 200.
Lionsmennirnir í Frey hafa verið sérstakir velunnarar deildarinnar undanfarin ár og fært henni margar góðar gjafir.
Deildarstjórinn, Hulda Bergvinsdóttir, tók við gjöfinni 5. júní 2007 og sannreyndi ágæti hennar með því að leggjast í rúmið.