Fagráð hjúkrunar á lyflækningasviði Ivar stofnað 12. apríl 2007. Fagráðið er vettvangur hjúkrunarfræðinga með meistaramenntun þar sem fjallað er um fagleg málefni sem tengjast hjúkrun sjúklinga og fjölskyldna þeirra sem njóta þjónustu sviðsins. Fagráðið tekur einnig þátt í að móta stefnu hjúkrunar og starfsþróun hjúkrunarfræðinga á sviðinu í samráði við sviðstjóra hjúkrunar sem er meðlimur ráðsins. Fagráðið vinnur í nánu samstarfi við hjúkrunardeildarstjóra. Forstöðumaður fræðasviðs hjúkrunar á sviðinu veitir ráðinu forstöðu.
Fyrsti vinnufundur fagráðsins með hjúkrunardeildarstjórum var 23. maí s.l. og var viðfangsefni fundarins klínískt nám í hjúkrunarfræði - framtíðarsýn. Áhersla var m.a. lögð á að undirbúa komu ört vaxandi fjölda hjúkrunarfræðinemenda í klínískt nám og auka enn frekar gæði námsins. Sérfræðingar í hjúkrun á sviðinu eru í vaxandi mæli í starfi í hjúkrunarfræðideild samhliða störfum á sjúkrahúsinu. Hlutur þeirra í kennslu vex hröðum skrefum. Unnið er að því að formfesta enn frekar rannsóknarsamstarf á sviðinu.
Efri myndin: Fagráðið og hjúkrunardeildarstjórarnir. Neðsta röð frá vinstri: Björg Eysteinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Herdís Herbertsdóttir, Hildur Einarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Jónína H. Hafliðadóttir, Auður Ketilsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir, Hallveig Broddadóttir, Ágústa Benný Herbertsdóttir, Þorbjörg Sóley Ingadóttir. Efsta röð frá vinstri: Þóra I. Árnadóttir, Herdís Ástráðsdóttir, Stefanía Arnardóttir, Katrín Björgvinsdóttir, Hildigunnur Friðjónsdóttir, K. Sigríður Sveinsdóttir. Á myndina vantar deildarstjórana Guðrúnu Halldórsdóttur, Unni Sigtryggsdóttur, Hildi Þóru Hallbjörnsdóttur, Emmu B. Magnúsdóttur og Sigurlaugu Magnúsdóttur og einnig þær Bylgju Kærnested og Jónínu Þ. Erlendsdóttur úr fagráðinu.
Neðri myndin: Fagráð hjúkrunar á lyflækningasviði I.
Neðri röð: Björg Eysteinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Herdís Herbertsdóttir, Hildur Einarsdóttir. Efri röð: Auður Ketilsdóttir, Þóra Jenný Gunnarsdóttir, Katrín Björgvinsdóttir, Hallveig Broddadóttir, Ágústa Benný Herbertsdóttir, Þorbjörg Sóley Ingadóttir. Á myndina vantar Bylgju Kærnested og Jónínu Þ. Erlendsdóttur.