Guðborg Auður Guðjónsdóttir, lyfjafræðingur og forstöðumaður eitrunarmiðstöðvar á slysa-og bráðasviði LSH hefur verið kjörin formaður Samtaka norrænna eitrunarmiðstöðva (Nordic Association of Poison Centres). Samtökin halda ráðstefnu árlega og var síðasta ráðstefna haldin í Reykholti í Borgarfirði 19 . - 21. september 2007 og sóttu hana 39 manns.
Kjörin formaður Samtaka norrænna eitrunarmiðstöðva
Guðborg Auður Guðjónsdóttir forstöðumaður eitrunarmiðstöðvar LSH hefur verið kjörin formaður Samtaka norrænna eitrunarmiðstöðva.