Yfir 700 íslenskir sérfræðingar á byggingarsviði og flestar stærstu arkitekta- og verkfræðistofur landsins taka þátt í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala við Hringbraut. Tilkynnt var um niðurstöður forvals samkeppninnar á kynningarfundi sem verkefnisstjórn nýs Landspítala efndi til mánudaginn 22. febrúar 2010 í matsalnum við Hringbraut. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra var meðal viðstaddra og flutti ávarp. Gunnar Svavarsson, formaður verkefnisstjórnar Nýs Landspítala, stýrði kynningarfundinum og Ingólfur Þórisson, formaður forvalsnefndar og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala, tilkynnti um niðurstöðu nefndarinnar.
Alls bárust sjö umsóknir um þátttöku í forvali hönnunarsamkeppninnar og uppfylltu sex teymi tilskyldar hæfniskröfur. Fimm stigahæstu teymunum verður nú boðið að taka þátt í hönnunarsamkeppninni en ábyrgðaraðilar þeirra eru Mannvit hf., Almenna verkfræðistofan hf., TBL arkitektar ehf., Verkís hf. og Efla hf. Fjögur fyrstnefndu teymin hlutu fullt hús stiga í hæfismatinu eða 180 og fimmta teymið hlaut 160 stig en lágmarksstigafjöldi teymis til að teljast hæft var 135 stig. Hönnunarteymin eiga að skila tillögum sínum í byrjun júní og úrslit verða tilkynnt einum mánuði siðar.
Sjá nánar um hönnunarteymin í fréttatilkynningu (pdf)
Meginforsenda hönnunarsamkeppninnar er að ljúka sameiningu stóru spítalanna á höfuðborgarsvæðinu þannig að starfsemi Landspítala Fossvogi flytjist að Hringbraut. Samkeppnin er tvíþætt og nær annars vegar til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut í heild og hins vegar til útfærslu á fyrsta áfanga þess en það er spítalastarfsemi í 66 þúsund fermetra nýbyggingu sem skiptist í þrjá meginhluta:
- Bráðakjarna með bráðamóttöku, myndgreiningu, gjörgæslu, skurðstofum og rannsóknarstofum.
- Legudeildir með 180 rúmum sem öll eru í einbýli.
- Sjúklingahótel með 80 herbergjum.
Við mat á innsendum lausnum verður m.a. litið til arkitektúrs, ytra- og innra skipulags, áfangaskiptingar, sveigjanleika, tækni og tæknikerfa, umhverfissjónarmiða, byggingarkostnaðar, rekstrarkostnaðar bygginga og heildarhagkvæmni starfseminnar. Er ráðgert að sá þáttur vegi 80-90% af heildareinkunn en tilboð í hönnunarþóknun vegi 10-20%.
Gert er ráð fyrir að teymið sem verður hlutskarpast í samkeppninni vinni að hönnun verkefnisins fram að einkaframkvæmdarútboði en starfi að því loknu við verkefnisstjórn og hönnunarrýni með verkkaupa.
Hvert teymi er skilar inn tillögu sem uppfyllir skilyrði keppnislýsingar og tekin er til dóms í hönnunarsamkeppninni fær greiddar 15 milljónir króna, án virðisaukaskatts, fyrir vinnu sína við tillögugerðina í samkeppninni.
Áætlaður kostnaður við nýbyggingu Landspítala er um 33 milljarðar króna á verðlagi í mars 2009. Þess er vænst að framkvæmdir við hana geti hafist á síðari hluta árs 2011 og er áætlað að þær standi yfir fram á árið 2016.
Tengt efni:
Vefur um nýjan Landspítala - www.haskolasjukrahus.is