|
Tvær stærstu bráðadeildir Landspítala sameinast í eina bráðamóttöku í Fossvogi fimmtudaginn 8. apríl 2010. Í framhaldi af sameiningunni tekur hjartamiðstöð til starfa við Hringbraut þar sem áhersla verður á dag- og göngudeildarþjónustu auk bráðaþjónustu fyrir hjartasjúklinga á virkum dögum.
Bráðamóttakan í Fossvogi skiptist í bráðadeild á G2 og bráða- og göngudeild á G3.
Markvisst undirbúningsstarf hefur verið innt af hendi með þátttöku að minnsta kosti 160 starfsmanna í 36 starfshópum. Hlutverk þeirra hefur verið að yfirfara helstu ferla varðandi móttöku og meðferð hinna ýmsu bráðavandamála með það að markmiði að tryggja örugga þjónustu.
Húsnæðinu í Fossvogi hefur verið breytt og bætt til að mæta auknum fjölda sjúklinga, bæði á deild G2 og G3. Ný viðbygging var reist til að bæta aðkomu að deildinni og aðstöðu sjúklinga og starfsmanna. Sjúklingar og starfsmenn hafa sýnt óhjákvæmilegu umróti sem fylgt hefur húsnæðisbreytingunum mikla tillitsemi og þolinmæði en nauðsynlegt reyndist að fara í þær samhliða fullum rekstri deildanna.
Deildarstjóri bráðadeildar á G2 er Ragna Gústafsdóttir og yfirlæknir bráðalækninga er Elísabet Benedikz.
Deildarstjóri bráða- og göngudeildar á G3 er Bryndís Guðjónsdóttir og yfirlæknir er Ólafur R. Ingimarsson.