Foreldrar Jakobs Arnar og einn af þremur bræðrum hans afhentu gjöfina12. nóvember 2012. Aðdragandi hennar var sá að fyrirtækið Sensa ehf varð 10 ára fyrr á árinu en faðir Jakobs hefur starfað þar síðan 2003. Í tilefni af afmælinu og að Jakob Örn var 10 ára þegar hann lést færði Sensa fjölskyldunni peningagjöf til minningar um drenginn sem henni var falið að gefa áfram þangað sem hún kæmi að góðum notum. Jakob Örn hafði átt margar stundir á skrifstofu Sensa og þekkti starfsfólkið mjög vel. Fjölskyldan vildi að minningargjöfin tengdist heilablæðingum á einhvern hátt og ákvað að færa heila- og taugaskurðlækningadeildinni hana.
„Það er gott að geta gefið í minningu barnsins síns og haldið minningu þess lifandi. Tækið er ekki eins og hvert annað tæki sem er keypt heldur er það minning um barn“, segir Herdís Þorláksdóttir, móðir Jakobs Arnar.
|
|
|
Rafnar Örn kannaði svo blóðflæðið í Ingvari lækni og var hinn fagmannlegasti við það. |