Við undirritun samningsins sagði Rafn Benediktsson, yfirlæknir á innkirtlasviði Landspítala; „fólk sem er með insúlínháða sykursýki, þarf að leggja mikið á sig til að ná góðum tökum á sjúkdómnum. Í því felast tíðar blóðsykurmælingar og dagbókarfærslur sem þarf svo að meta í samhengi við mataræði og hreyfingu. Allar tækninýjungar sem gera þetta ferli einfaldara og skilvirkara eru vel þegnar. Samstarf okkar og Medilync felst í ábendingum um hvað er gagnlegt í þessu tilliti en gefi sjúklingar leyfi gefst þeim kostur á að vera með í þróunarferlinu frá upphafi “.
Að sama skapi sagði Sigurjón Lýðsson, framkvæmdastjóri Medilync, að „þetta samstarf muni hjálpa okkur að gera lausnina enn betri og skilvirkari fyrir þá sem glíma við sykursýki dag frá degi. Við þróun á lækningatæki er gríðarlega mikilvægt að framkvæma allar nauðsynlegar prófanir í samvinnu við fagaðila og því fögnum við samstarfinu við Rafn og hans sérfræðinga á innkirtlasviðinu. Við höfum þegar fengið góðar ábendingar sem gera lausnina okkar ennþá betri.“Um Medilync: Fyrirtækið er sprotafyrirtæki á heilbrigðissviði sem er að hanna og þróa nýja tegund af tæki (Insulync) og hugbúnaði til að gera meðhöndlun á sykursýki meðfærilegri fyrir sjúklingana. Hjá fyrirtækinu starfa fjórir sérfræðingar á sviði Tölvunarfræði og lýðheilsu ásamt verktökum á sviði Rafmagnsverkfræði. Helstu samstarfsaðilar Medilync eru Aga matrix, Microsoft, Intel, VIZ og PI temp.