Svandís Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra heimsótti Landspítala ásamt fylgdarliði 4. janúar 2018. Þetta er fyrsta heimsókn Svandísar á Landspítala síðan hún tók við ráðherraembætti í desember.
Svandísi var í þessari heimsókn kynnt starfsemi dauðhreinsunar og þvottahúss, hermiseturs, eldhúss við Hringbraut, rannsóknarstofa við Hringbraut, jáeindaskannans og meðferðargeðdeildarinnar Laugaáss.