Árið 2017 voru 1.767 nemendur skráðir í nemaskráningarkerfi Landspítala. Nemendur í námi á framhaldsskólastigi voru 273, háskólanemendur í grunnnámi 1.012 og háskólanemendur í framhaldsnámi 482. Erlendir nemendur voru 109 talsins.
Nauðsynlegt er að skrá alla nemendur í nám á Landspítala. Í nemakerfinu kemur fram hvenær og hvar á spítalanum nemendur eru í námi og haldið utan um að nemandi hafi undirritað þagnarheit og reglur um notkun sjúkraskrárupplýsinga. Tölvuaðgangur er veittur og auðkenniskort útbúin samkvæmt upplýsingum úr kerfinu.
Nemendur sem koma inn á spítalann í skipulagt nám, t.d. frá Háskóla Íslands, eru skráðir samkvæmt upplýsingum þaðan og leitast er við að afgreiða öll undirskriftar- og aðgangsmál áður en nemendur koma inn á spítalann. Nauðsynlegt er að tilkynna um nemendur sem koma á eigin vegum eða á annan hátt inn á spítalann.
Nemendur hafa verið skráðir í nemaskráningarkerfið síðan árið 2010:
Ár Fjöldi nemenda
2010 1.193
2011 1.359
2012 1.532
2013 1.530
2014 1.607
2015 1.612
2016 1.755
2017 1.767
Nemendum fjölgar jafnt og þétt. Fjölgunin undanfarin ár er þó fyrst og fremst rakin til vakningar á mikilvægi skráningarinnar.
Upplýsingar varðandi skráningu nema, gátlista, þagnarskylduskjöl og fleira
Upplýsingar og umsóknarform fyrir íslenska nemendur sem eru í námi erlendis
Upplýsingar og umsóknarform fyrir erlenda nemendur
International employees and students (Clinical Training at Landspitali)
Upplýsingar um skráningu nemenda og aðgangsmál:
Sigrún Ingimarsdóttir, verkefnastjóri á menntadeild Landspítala
sigruni@landspitali.is, sími 5431475