Samtök fjármálafyrirtækja, fyrir hönd vátryggingafélaganna Sjóvár, TM, VÍS og Varðar, leggja hjartadeild Landspítala til 18 milljónir króna á næstu árum, samkvæmt samningi sem undirritaður var 16. október 2018. Féð rennur í sjóð sem verður meðal annars nýttur til að stórefla fræðslu og forvarnarstarf á vegum hjartadeildarinnar Landspítala.
Styrk vátryggingafélaganna til hjartadeildar verður varið til að stórefla fræðslu og forvarnarstarf á vegum hennar. Hjarta- og æðasjúkdómar eru helsta dánarorsök Íslendinga og því þykir vel við hæfi að vátryggingafélögin styðji við hjartadeild Landspítala með þessum hætti.
Í fyrstu verður megináherslan á að styrkja svokallaðar annars stigs forvarnir, þ.e. forvarnir hjá þeim sem hafa þegar greinst með kransæðasjúkdóm. Það felur meðal annars í sér reykleysismeðferð, meðferð við háþrýstingi, sykursýki og hækkuðu kólesteróli. Einnig verður skoðað hvernig best er að efla forvarnir hjá þeim sem enn hafa ekki greinst með hjartasjúkdóm. Í því tilliti kunni að vera áhugavert að beina sjónum fyrst og fremst að yngri kynslóðum.
Samningurinn felur meðal annars í sér þróun vefsíðu með gagnvirku fræðsluefni um kransæðasjúkdóma. Styrkurinn verður einnig nýttur til umbóta á aðstöðu sjúklinga og aðstandenda þeirra sem liggja á hjartadeild. Þá verður enn fremur lagt fé til eflingar starfsþróunar starfsfólks deildarinnar.
Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja:
„Vátryggingafélögin gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu þegar kemur að fræðslu og forvörnum. Forvarnir eru ákaflega mikilvægar þegar kemur að vörnum gegn sjúkdómum á borð við hjarta- og æðasjúkdóma. Þar getur lífsstíll og mataræði til að mynda skipt miklu máli til þess að koma í veg fyrir slíka sjúkdóma. Samkomulag vátryggingafélaganna og hjartadeildar er því mikið fagnaðarefni og mun án efa skila miklum árangri þegar fram í sækir.“
Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala:
„Þetta er mjög áhugavert samstarf og sýnir í hnotskurn hversu mikla áherslu við viljum leggja á forvarnastarf og heilsueflandi aðgerðir á komandi árum. Það skyldi nefnilega seint vanmeta jákvæð áhrif þátta eins og hreyfingar, holls mataræðis, kjörþyngdar og góðra svefnvenja á heilbrigði.“
Bylgja Kærnested, deildarstjóri hjartadeildar Landspítala:
„Til viðbótar við fornvarnarstarfið eru með þessum samningi sköpuð mikilvæg tækifæri til að bæta aðstöðu á deildinni svo og efla starfsþróun hjá þeim sem starfa á hjartadeild. Það er ekki síst mikilvægt þegar gríðarleg samkeppni er um heilbrigðisstarfsfólk, sérstaklega hjúkrunarfræðinga.“
Mynd: Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, Katrín Júliusdóttir, framkæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, og Bylgja Kærnested, deildarstjóri á hjartadeild skrifa undir samstarfssamninginn. Fulltrúar vátryggingfélaganna fylgjast árvökulir með.