Vegna framkvæmda við nýbyggingar í Landspítalaþorpinu við Hringbraut verður inngangur barnaspítala nú færður 50 metra í austurátt eða nánar tiltekið á suðurgafl kvennadeildar. Þar verður sem fyrr opið kl. 07-22, alla virka daga, og kl. 10-22 um helgar. Utan þess tíma er inngangur á barnaspítala fyrir gesti og gangandi frá Eiríksgötu. Allar bráðakomur á barnaspítala eiga eftir sem áður að koma inn um suðurgaflinn, allan sólarhringinn.
Í meðfylgjandi myndskeiði er rætt stuttlega við Ingileif Sigfúsdóttur, deildarstjóra bráðamóttöku barnaspítala.