GROHE á Íslandi færði Landspítala ný og fullkomin GROHE-tæki í lok árs 2018. Búnaðurinn verður notaður í nýjum byggingum spítalans en verðmæti hans er tæplega 3 milljónir króna. GROHE er einn stærsti framleiðandi blöndunar- og hitastýritækja í veröldinni og starfar hér á landi í samvinnu við umboðsaðilann RAMIS og söluaðilann BYKO.
„Við viljum með þessari gjöf þakka mannauðnum á Landspítala fyrir óeigingjarnt starf og fyrsta flokks þjónustu við erfiðar aðstæður. Við hjá GROHE, RAMIS og BYKO hugum að öryggi og velferð sjúklinga og starfsfólks og leggjum Landspítala lið með stolti“, sagði Ómar Kristjánsson, forstjóri RAMIS, við afhendingu gjafarinnar.
Mynd: Páll Matthíasson forstjóri Landspítala ásamt Ómari Kristjánssyni hjá RAMIS og Jóni Steinari Magnússyni hjá BYKO