Móttökustandur fyrir innritun skjólstæðinga var formlega tekinn í notkun á göngudeildum lyf- og skurðlækninga á 3. hæð á Landspítala Fossvogi þann 25. janúar 2019. Þessar deildir eru á A3, B3 og E3.
Þegar skjólstæðingar mæta í bókaðan tíma á þessar deildir skrá þeir sig inn sjálfir með því að slá inn kennitölu og svara spurningum varðandi smitgát og ofnæmi. Við innskráningu merkjast þeir sjálfkrafa mættir í sjúkraskrárkerfið Sögu og fá leiðbeiningar á móttökustandinum um hvert þeir eiga að fara, t.d. á hvaða biðstofu. Skjólstæðingar þurfa þá ekki að gefa sig fram við móttökuritara þegar þeir mæta. Þessu kerfi er ætlað að skila mikilli hagræðingu og þægindum bæði fyrir starfsfólk Landspítala og skjólstæðinga.