Aðalinngangur Barnaspítala var opnaður aftur 16. apríl 2019 en hann hefur verið lokaður um skeið vegna jarðvegsframkvæmda í tengslum við byggingu nýs meðferðarkjarna Landspítala.
Í meðfylgjandi myndskeiði lýsir Ásbjörn Jónsson, verkefnastjóri hjá Nýjum Landspítala ohf., aðgenginu og birtar eru skýringamyndir sem sýna aksturs- og gönguleiðir og bílastæði þar hjá.