Oddfellowstúka nr. 1, Ingólfur, færði verkjateymi Landspítala veglega gjöf til tækjakaupa fimmtudaginn 2. maí 2019 Gjöfin verður nýtt til kaupa á tæki sem notað er við deyfingar fyrir fólk með erfiða verki og mun nýtast vel. Stúkunni var vel þakkað fyrir gjöfina við afhendinguna.
Mynd: Félagar í stúkunni ásamt Kára Hreinssyni yfirlækni og Guðmundi Björnssyni svæfingalækni