Ársskýrsla Landspítala 2018 er komin út í rafrænu formi á vef spítalans. Þetta er í fyrsta skipti sem ársskýrsla spítalans er ekki prentuð.
Þessi háttur á útgáfu skýrslunnar sparar verulegt fé, er umhverfisvænn og skapar um leið nýja möguleika í framsetningu á efni. Sérstaklega á það við birtingu á myndskeiðum sem unnin eru á spítalanum í auknum mæli.
Ársfundur Landspítala 2019 er í Hörpu föstudaginn 17. maí, kl. 14:00 tl 16:00
Allir velkomnir