Nú er komið að því að loka þarf fyrir umferð bíla og gangandi, nú í báðar áttir, á milli gamla spítala og kvennadeildar.
Gert er ráð fyrir að lokað verði frá 22. júlí til 31. júlí.
Gönguleið frá Barnaspítala er enn opin í austur, í átt að Geðdeild. Gangandi vegfarendur geta enn gengið upp við gamla spítala eins og meðfylgjandi mynd sýnir.