Fæðingarskráningin á Íslandi birtir skýrslu fyrir árið 2017. Í henni eru ítarlegar upplýsingar um fæðingar á Íslandi á því ári. Landlæknisembættið hefur yfirumsjón með fæðingarskráningunni sem er staðsett á kvennadeildum Landspítala.
Skýrsla frá fæðingarskráningunni fyrir árið 2017
Úr skýrslunni:
Fæðingar á árinu 2017 voru 4.019 þar sem alls fæddust 4.075 börn. Þetta er
smávægileg fjölgun frá fyrra ári, en þá höfðu ekki jafn fá börn fæðst hérlendis síðan árið
2002. Til samanburðar fæddust á Íslandi 5.015 börn árið 2009 og hafa aldrei fæðst fleiri
börn á landinu en á því ári.
Fæðingar voru áætlaðar á sjö stöðum á landinu árið 2017. Kvennadeild LSH er
langstærsti fæðingarstaður landsins með rúmlega 74% allra fæðinga.