Vefsíðan Spítalinn í tölum hefur verið uppfærð með nýjustu upplýsingum og framsetningunni breytt.
Á vefsíðunni er meðal annars að finna fimm ára tölfræðilegt yfirlit áranna 2014 til 2018. Þau talnagögn er hægt að sækja á vefsíðunni sem PDF og Excel skjöl. Á vefsíðunni er einnig aðgangur að ársskýrslum, ársreikningum og ýmsu öðru talnaefni um starfsemi Landspítala.
(Ath! Ef vandkvæði eru með að sjá efnið í flipahlutanum á vefsíðunni í Internet Explorer vafranum er reyndandi að nota Chrome vafrann)