Prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis vestra, séra Helga Soffía Konráðsdóttir, predikar í guðsþjónustu á Landakoti sunnudaginn 15. september 2019. Auk þess færir hún Landspítala nýjar biblíur til eignar fyrir hönd biskups Íslands, Agnesar M Sigurðardóttur, og prófastsdæmisins.
Séra Eysteinn Orri Gunnarsson leiðir stundina og Ingunn Hildur Hauksdóttir sér um tónlistina.
Sjúklingar, fjölskyldur og starfsmenn eru velkomnir að venju.