Dagdeild öldrunar á Landakoti fékk í október 2019 að gjöf frá Eignaumsjón færanlegan ofn með helluborði.
„Ofninn kemur svo sannarlega að góðum notum og vakti mikla lukku þegar hann var tekinn í notkun og ilmurinn af bakstrinum breiddist út um deildina,“ segir Guðný Valgeirsdóttir, deildarstjóri á dag-, göngu- og samfélagsdeild L0/L1.
Á deildinni fer fram endurhæfing aldraðra sem geta nýtt sér meðferð á daginn en dvalið heima á kvöldin og um helgar. Markmiðið er að aðstoða fólk við að viðhalda hæfni sinni og takast á við breytingar á heilsufari. Meðan á endurhæfingartímabilinu stendur koma þeir sem eru í prógramminu á deildina tvisvar til þrisvar í viku, í 4 til 5 tíma í senn. Fyrri hópurinn kemur inn á morgnana og er fram yfir hádegi en seinni hópurinn kemur í hádeginu og er fram á daginn. Allir eru saman í mat í hádeginu og þá kemur ofninn og helluborðið sér vel.
„Næring er mikilvægur þáttur af meðferð sem fer fram á dagdeildarhluta. Því nýtist þessi gjöf sérstaklega vel fyrir okkar starfsemi og kunnum við Eignaumsjón bestu þakkir fyrir,“ segtr Guðný.
„Það er okkur ánægjuefni að hafa getað lagt dagdeildinni smá lið með þessum hætti,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar. „Við þekkjum það vel, eftir tveggja áratuga þjónustu við húsfélög, hversu mikilvægt það er fyrir eldri borgara að geta dvalið sem lengst á sínum heimilum og tökum því hattinn ofan fyrir dagdeild öldrunar á Landakoti og annarri sambærilegri starfsemi.“
Mynd: Hluti starfsfólks dag-, göngu- og samfélagsdeildar L0/L1, þær Edda, Guðný, Þórunn og Svava við ofninn góða, ásamt framkvæmdastjóra Eignaumsjónar, Daníel Árnasyni.