Benedikt Olgeirsson er framkvæmdastjóri Hringbrautarverkefnisins á Landspítala frá og með 1. nóvember 2019.
Benedikt hefur verið framkvæmdastjóri þróunar hjá Landspítala frá árinu 2015 og haldið í því starfi utan um Hringbrautarverkefnið. Áður var Benedikt aðstoðarforstjóri spítalans 2010-2015. Benedikt er ekki í framkvæmdastjórn Landspítala en Hringbrautarverkefnið á Landspítala heyrir beint undir forstjóra. Ábyrgðarsvið Benedikts eru eftirfarandi.
- Aðkoma Landspítala að hönnun og uppbyggingu meðferðarkjarna, rannsóknahúss og annarra tengdra bygginga í Landspítalaþorpinu við Hringbraut.
- Yfirumsjón með tækjavæðingu og þróun upplýsingakerfa fyrir nýbyggingarnar.
- Undirbúningur fyrir flutning starfseminnar, innleiðing nýbygginga og samþætting þeirra við eldri byggingar, ásamt þróun flæðis og ferla.
- Aðkoma Landspítala að heildaráætlun um nýtingu og framtíðarþróun húsnæðis og innviða Landspítala, við Hringbraut og víðar.
Benedikt er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistarapróf í framkvæmdaverkfræði og verkefnastjórnun frá University of Washington í Seattle. Á árunum 2005 til 2009 var hann framkvæmdastjóri umbreytingaverkefna hjá Atorku hf. og þar áður framkvæmdastjóri Parlogis ehf. Hann starfaði hjá Eimskip hf. frá árinu 1993 til 2004 sem forstöðumaður flutningamiðstöðvar í Sundahöfn, forstöðumaður innanlandsflutninga og sem framkvæmdastjóri Eimskips í Hamborg. Benedikt vann við verkefnastjórnun í byggingargeiranum á árunum 1988 til 1993.
Framkvæmdir í Landspítalaþorpinu við Hringbraut eru stærsti áfanginn í íslensku heilbrigðiskerfi frá upphafi. Þessi uppbygging og endurnýjun á innviðum Landspítala verður bylting í aðstöðu, þjónustu og öryggi fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk.