Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa markaða, afhenti Guðrúnu Ragnars, barnahjúkrunarfræðingi og deildarstjóra Rjóðurs, 11.071.795 krónur 4. desember 2019 sem var afrakstur „Takk dagsins“ 28. nóvember.
Takk dagur Fossa markaða var nú haldinn í fimmta sinn. Allar þóknanatekjur vegna viðskipta renna á þessum degi til góðs málefnis. Auk Fossa markaða taka Kauphöllin, Nasdaq Iceland og uppgjörsfyrirtækið T plús þátt í deginum með því að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa, sem í staðinn renna til söfnunarinnar. Auglýsingastofan Tvist gaf vinnu sína sem tengdist þessum degi og skartgripahönnuðurinn Hildur Hafstein hannaði armbönd til styrktar átakinu.
Rjóður er hjúkrunar-, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik og langveik fötluð börn. Þangað koma börn að 18 ára aldri.
Þau þarfnast öll mikillar hjúkrunar og umönnunar auk afþreyingar og leiks.
Guðrún Ragnars: „Okkur hefur lengi dreymt um að geta gert betur við ungt fólk sem hefur dvalið í Rjóðri. Styrkurinn sem Fossar markaðir afhenda okkur í dag, og er afrakstur Takk dagsins í síðustu viku, verður til þess að við getum tekið það verkefni lengra og litið á þetta sem nokkurs konar stofnframlag. Vonandi mætum við svo góðum kröftum annars staðar í þjóðfélaginu sem aðstoðar okkur að vinna þetta enn lengra.“
Haraldur Þórðarson: „Þegar við kynntum okkur starfsemi Rjóðurs var ljóst að gríðarlega öflugt starf er unnið þar sem snýr að þörfum barna og fjölskyldna þeirra. Við vorum ákveðin í að tileinka daginn Rjóðri en fundum einnig vilja stjórnenda til að gera enn betur við eldri börn og ungmenni. Þörfin fyrir hjúkrun, endurhæfingu og afþreyingu ungmenna er enn til staðar þótt þau eldist og eigi ekki lengur rétt á þjónustu frá Rjóðri. Það eru erfið tímamót fyrir þessa einstaklinga og aðstandendur þeirra. Við vonum að framlag okkar í ár verði hvatning til þess að efla þjónustu Rjóðurs með því að opna nýja stuðningsdeild sem mætir betur þörfum eldri barna og ungmenna.“