„Jól í bæ“ er yfirskrift jólatónleika í Fríkirkjunni fimmtudaginn 5. desember 2019 til styrktar Lífi styrktarfélagi kvennadeilda Landspítala. Tónleikarnir hefjast kl. 12:00 og verða um 50 mínútna langir, fram koma um 50 tónlistarmenn.
Jólatónleikarnir eru hluti af hádegistónleikaröðinni „Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni“.
Miðinn kostar 2.500.