Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri var föstudaginn 28. febrúar færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir nýrri kórónaveiru (COVID-19). Maðurinn er ekki alvarlega veikur en sýnir dæmigerð einkenni COVID-19 sjúkdóms (hósti, hiti og beinverkir). Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið hér á landi.
Í ljósi þessa hefur ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkjað hættustig almannavarna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekkert lát er á hópsýkingu af völdum veirunnar ytra, þá sérstaklega í Evrópu, og að fyrsta tilfellið hefur nú verið staðfest hér á landi.
Maðurinn sem greindist var nýverið staddur á Norður-Ítalíu utan skilgreinds hættusvæðis fyrir veiruna. Unnið er að rakningu smitleiða en markmið þeirra vinnu er að varpa ljósi hverjir gætu verið útsettir vegna þessa staðfesta smits.
Einstaklingar sem finna fyrir veikindum og hafa mögulega verið útsettir fyrir smiti vegna t.d. ferðalaga eru hvattir til að hringja í 1700 (fyrir erlend símanúmer: +354 544-4113) til að fá leiðbeiningar.
Þeir sem hafa verið í nánu samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu verða settir í sóttkví og hið sama á við um þá sem ferðast hafa á undanförnum dögum til skilgreindra áhættusvæða.
Ítarlegar upplýsingar um hina nýju kórónaveiru er að finna á vefsvæði Landlæknis (https://www.landlaeknir.is) og jafnframt eru þar upplýsingar um skilgreind áhættusvæði. Einnig skal minnt á þjónustugátt Heilsuveru.
Ítarlegar upplýsingar:
Vefur almannavarna: Fyrsta tilfelli COVID-19 kórónaveiru greinist á Íslandi – hættustig almannavarna virkjað