Í ljósi aðstæðna hefur vísindaráð Landspítala, í samráði við stjórn Vísindasjóðs Landspítala, ákveðið að Vísindum á vordögum sem halda átti 8. maí 2020 verði frestað um óákveðinn tíma. Vísindaráð mun samt sem áður halda áfram að fara yfir styrkumsóknir og er gert ráð fyrir að úthlutun styrkja verði í byrjun maí. Þær verði með rafrænu sniði þetta árið.
Vísindaráð hefur enn fremur ákveðið að samþykkt ágrip vegna veggspjaldakynningar á Vísindum á vordögum verði birt í Læknablaðinu eins og verið hefur undanfarin ár.