Kæra samstarfsfólk!
Álagið á starfsemi Landspítala hefur verið ótrúlegt undanfarnar vikur. Það eru allir á dekki til að bregðast við farsóttinni sem geysar. Gríðarleg orka þúsunda öflugra starfsmanna hefur beinst að því að spítalinn geti verið sá hornsteinn sem hann á að vera og þjóðin reiknar með að hann sé. Veirufræðideildin okkar leggur nótt við nýtan dag við greiningar á þúsundum sýna. Á göngudeild Covid-19 sinnir öflug sveit hjúkrunarfræðinga og lækna fólki sem greinst hefur með Covid-sýkingu út um allt land og fylgir þeim eftir í samstarfi við heilbrigðisstofnun viðkomandi héraðs. Sumir þurfa þjónustu í Birkiborg og komast heim meðan aðrir þurfa innlögn hjá okkur.
Nú taka fjórar deildir hjá okkur við sjúklingum með Covid-19 smit eða grun um slíkt. Aðrir koma til okkar í gegnum bráðamóttökuna. Alls hafa 22 sjúklingar þurft gjörgæslumeðferð. Jafnhliða sinnum við auðvitað stórum hópi annarra sjúklinga sem þurfa þjónustu okkar á hinum ýmsu deildum. Til að allt þetta geti orðið að veruleika hafa allir lagst á eitt, starfsfólk í framlínu, stjórnendur og gríðaröflug sveit starfsmanna í stoðþjónustu svo sem iðnaðarmenn, starfsmenn heilbrigðis- og upplýsingatæknideildar, apóteks, eldhúss, þvottahúss og fleiri og fleiri. Þetta er samstillt átak allra starfsmanna og ég vil þakka ykkur innilega fyrir þolinmæði, þrautseigju og skilning á þessum ótrúlegu tímum.
Með þetta mikla álag í huga höfum við lagt fram hugmyndir að umbun til allra starfsmanna Landspítala, að æðstu stjórnendum undanskildum. Í kjarasamningum opinberra starfsmanna er almennt ákvæði til sérstakrar tímabundinnar umbunar sem er ætlað að mæta álagi eða viðbótarverkefnum og mér þykir einboðið að nú séu sannarlega uppi slíkar aðstæður hjá okkur og horfa þurfi til annarra en hefðbundinna upphæða í því tilliti.
Það vakti að sjálfsögðu athygli að nú um mánaðamótin kom til framkvæmda að hluta til ákvörðun sem tekin var á haustmánuðum um að hætta greiðslum sérstaks vaktaálagsauka sem hópur hjúkrunarfræðinga hefur notið. Vaktaálagsaukinn og Hekluverkefnið eru ófjármögnuð verkefni sem Landspítali ákvað að greiða hjúkrunarfræðingum fyrir umfram kjarasamninga. Þetta voru tilraunaverkefni en líka að hluta nauðsynlegar aðgerðir í ljósi mikils skorts á þessu mikilvæga starfsfólki. Í september síðastliðnum, þegar Landspítali stóð frammi fyrir umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum, var ákveðið að fella niður vaktaálagsaukann frá vori en halda Hekluverkefninu áfram þangað til samningar næðust . Engan óraði þá fyrir þeirri stöðu sem við nú erum í heldur voru vonir bundnar við að samningum við hjúkrunarfræðinga væri lokið. Svo er ekki, sem í ljósi stöðunnar er afar óheppilegt enda skrifaði ég í vikunni, ásamt forstjórum hinna 9 opinberu heilbrigðistofnananna, heilbrigðisráðherra bréf þar sem við lýstum áhyggjum okkar af þessari stöðu. Það er áríðandi að samningsaðilar nái saman sem allra fyrst. Oft var þörf en nú er nauðsyn.
Það voru ekkert minna en stórkostlegar fréttir sem bárust okkur í síðustu viku þegar heilbrigðisráðherra tilkynnti um að ráðist yrði í langþráðar framkvæmdir við stækkun Grensáss. Þessa hefur verið beðið lengi og hafa Hollvinir Grensásdeildar haldið málinu vakandi um árabil og verið óþrjótandi í eldmóði sínum. Nú hillir undir að þessi mikilvæga starfsemi fái viðunandi húsnæði en í þessum uppbyggingaráformum er gert ráð fyrir að stækkunin nemi um 3.100 fermetrum. Þessi mikla framkvæmd er hluti af fjárfestingarátaki stjórnvalda vegna Covid-19 faraldurs og sérstakt gleðiefni að einmitt þetta þjóðþrifamál er hluti þess.
Kæru samstarfsmenn, góða vakt og/eða njótið helgarinnar!
Páll Matthíasson