Afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni var opnuð þriðjudaginn 2. júní 2020 að viðstöddum nokkrum góðum gestum en fjöldinn var mjög takmarkaður vegna Covid-19. Afeitrunardeildin heyrir undir fíknigeðdeild geðþjónustu Landspítala og og mun veita fjölskyldumiðaða þjónustu.
Um er að ræða tvö meðferðarrými þar sem ungmenni með alvarlegan vímuefnavanda koma til innlagnar í 1-3 sólarhringa en eftir það taka við önnur úrræði. Þverfaglegt meðferðarteymi mun sinna ungmennum og aðstandendum þeirra á meðan dvöl stendur í samvinnu við barna- og unglingageðdeild (BUGL). Þá er náið samstarf við barnaverndarstofu og bráðamóttökur Landspítala.
Vel hefur verið gætt að aðbúnaði deildarinnar í samvinnu við hagsmunaaðila. Ráðuneyti heilbrigðis-, félags- og barnamála hafa verið verkefninu mikilvægir bakhjarlar. Sömuleiðis hefur Hringurinn lagt deildinni til mikinn stuðning í formi húsbúnaðar, innréttinga og tækja.
Við opnun deildarinnar fluttu ávörp þau Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs, Nanna Briem, forstöðumaður geðþjónustu, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Anna Björk Eðvarðsdóttir, formaður Hringsins og Páll Matthíasson forstjóri.
Myndskeið um undirbúning að opnuð afeitrunardeildar á Landspítala
Viðmælendur voru Björg Marianna Bernharðsdóttir deildarstjóri og Snærún Ösp Guðmundsdóttir aðstoðardeildarstjóri.