Árleg uppskeruhátíð vísinda á Landspítala verður miðvikudaginn 7. október 2020. Þessi hátíð er venjulega á vorin en var frestað til hausts vegna COVID-19.
Formleg dagskrá verður í Hringsal á Landspítala Hringbraut og vegna COVID-19 verður henni streymt beint.
Sérstök vefsíða verður opnuð þar sem hátíðinni verða gerð góð skil. Birt verður yfirlit vísindastarfs á Landspítala, starfsemi vísindaráðs og Vísindasjóðs Landspítala auk helstu vísindaverkefna starfsfólks spítalans á árinu 2019.
Ný vefsíða veggspjaldakynninga mun einnig líta dagsins ljós.