Ákveðið hefur að ganga til samninga við Eykt hf. um uppsteypu meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut, á grundvelli tilboðs fyrirrækisins í verkið.
Útboð á uppsteypu meðferðarkjarnans var haldið í framhaldi af niðurstöðu forvals þar sem fimm þátttakendum var gefin þátttökuheimild í útboðinu. Að lokinni yfirferð Nýs Landspítala ehf. á tilboðsgögnum, í samvinnu við Ríkiskaup, varð Eykt fyrir valinu, samkvæmt tilkynningu frá Nýjum Landspítala ohf.
Eykt bauð 8,68 milljarðar króna í uppsteypuna eða 82% af áætlun sem var 10,5 milljarðar króna án virðisaukaskatts. Meðferðarkjarninn verður um 70.000 fermetrar að stærð og er áætlað að uppsteypan hefjist í nóvember 2020 og framkvæmdatími verði um þrjú ár. Jarðvegsframkvæmdir við grunn hússins gengu vel og er lokið en Íslenskir aðalverktakar (ÍAV hf) önnuðust þann verkþátt.
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf.: „Þetta er einn af stærri áföngum í Hringbrautarverkefninu og unnið hefur verið að undirbúningi þessa skrefs um langan tíma, í framhaldi af hönnun verksins. Fjölmargir hafa komið að rýni og umsagnargerð, þakkir til allra þeirra en ekkert síður þeirra sem tóku þátt í forvalinu og útboðinu og sköpuðu samkeppnisgrundvöll um verkið. Fram undan er vissulega mikilvægt uppsteypuverkefni en það eru einnig fjölmargir aðrir verkþættir handan við hornið s.s. útboð á jarðvinnu rannsóknarhússins og alútboð eftir forval á bílastæða- og tæknihúsinu en forvalið verður opnað 6. október. Fjárlagafrumvarpið boðar aukinn kraft í Hringbrautarverkefnið og er ég ekki í vafa um að Alþingi mun styðja verkefnið áfram af fullum þunga.“
Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar hf. segir að „fyrirtækið sé vel undirbúið fyrir þetta stóra uppsteypuverk, sem er eitt af þeim stærri í Íslandsögunni. Reynsla okkar og allur aðbúnaður er á þeim stað að við munum strax ráðast í verkefnið af fullum krafti. Það verða um þrjú hundruð manns á okkar vegum þegar mest verður og við munum auðvitað sækjast eftir að takast á við fleiri þætti í Hringbrautarverkefninu en eingöngu þennan. Okkur þykir mikið til þess koma að hafa tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á nýja þjóðarsjúkrahúsinu“.
Meðferðarkjarninn verður stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu en í húsinu verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndunum. Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga. Aðalhönnuður hússins er Corpus hópurinn en beitt er aðferðafræði notendastuddrar hönnunar sem felst í því að starfsmenn Landspítala koma í ríkum mæli að hönnunarferlinu.