Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavefjum spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
1. Um komur á bráðamóttökur
Landspítali beinir því til fólks að leita ekki á bráðamóttöku með einkenni sem kunna að benda til COVID-19 heldur hafa samband við sína heilsugæslustöð símleiðis eða í gegnum Heilsuveru.
2. Um starfsmenn og nema sem starfa einnig utan Landspítala
Í samræmi við tilmæli sóttvarnalæknis verður starfsfólk að takmarka störf sín við einn vinnustað. Starfsfólk getur því ekki sinnt störfum á Landspítala og á öðrum stofnunum, s.s. hjúkrunarheimili, heimahjúkrun, sambýli eða öðrum sambærilegum stofnunum. Sama gildir um nema í klínísku námi á Landspítala er starfa á öðrum stofnunum, sbr. hér að framan. Áfram er heimilt að sinna störfum/námi á fleiri en einni vinnustöð innan Landspítala enda sé öllum sóttvarnaráðstöfunum fylgt.
3. Um starfsemi göngudeilda Landspítala
- Mælst er til að reynt verði að sinna sem flestum með síma eða rafrænum hætti.Ef nauðsynlegt er að sjúklingar komi á göngudeild þarf að gæta að eftirfarandi:
Hafa lengra bil milli bókana
Fara yfir skimspurningar vegna COVID-19 og leggja áherslu á að þeir sem eru í sóttkví/einangrun eða með einkenni mæti ekki. - Sjúklingar bíði utan Landspítala t.d í bíl og þeir séu kallaðir inn í bygginguna þegar þeirra tími nálgast til að hindra hópamyndun í biðstofum.
- Fyrir alla sjúklinga sem koma inn í bygginguna þarf að gæta mjög vel að tveggja metra reglunni, handhreinsun og notkun maska er algjört skilyrði.
- Sjúklingar mæti einir sé þess kostur, fylgdarmaður ef það er nauðsynlegt
4. Á Landspítala eru nú:
18 sjúklingar inniliggjandi vegna Covid 19 – 29 frá upphafi þriðju bylgju faraldursins.
- Þar af 4 á gjörgæslu og 3 í öndunarvél.
793 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar.
72 starfsmenn eru í sóttkví A.
37 starfsmenn eru í einangrun.