Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COVID-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavef spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
1. Álag á COVID-deildum
Álag eykst nú á deildum sem sinna COVID-19 veikum sjúklingum. Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd vill hvetja starfsfólk til að skrá sig á aukavaktir á þessum deildum. Þörf er á aðstoð hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, ritara og sérhæfðra starfsmanna.
Skráningarform:
Á innri vef spítalans er bæði á kórónuveirusíðuna og á korktöfluna komið skráningarform vegna þessara aukavakta.
2. Á Landspítala eru nú:
22 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 48 frá upphafi þriðju bylgju faraldursins
- Þar af 3 á gjörgæslu og einn í öndunarvél
1.059 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar
79 starfsmenn eru í sóttkví A
26 starfsmenn eru í einangrun