Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavef spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
Það eru engar sérstakar tilkynningar frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd í dag. Stjórnendur og starfsfólk er minnt á COVID-19 síðu Landspítala á innri vef – þar eru allar helstu upplýsingar og leiðbeiningar.
Á Landspítala eru nú:
24 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 52 frá upphafi þriðju bylgju faraldursins
- Þar af 3 á gjörgæslu og tveir í öndunarvél
1.147 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 180 börn
68 starfsmenn eru í sóttkví A
27 starfsmenn eru í einangrun