Athugasemd frá Landspítala vegna fréttaflutnings 15. október 2020 um að nefúði komi hugsanlega í veg fyrir COVID-19 sjúkdóm
Landspítali er háskólasjúkrahús. Auk þess að veita heilbrigðisþjónustu, sinnir starfsfólk spítalans margháttaðu vísindastarfi í samvinnu við innlenda og erlenda aðila, í samræmi við tilskilin leyfi siðanefnda og fleiri aðila. Vísindastarf fjallar um hið óþekkta, í þeim tilgangi að upplýsa það sem ekki er vitað og afla nýrrar þekkingar. Áhrif nefúða sem fjallað var um í fréttum gærdagsins eru, eftir því sem Landspítala er kunnugt um, óþekkt. Umfjöllunin kemur Landspítala á óvart. Eins og flestum er kunnugt, þurfa niðurstöður rannsókna í mönnum ávallt að liggja fyrir áður en fullyrt er um gagnsemi nýrra meðferða.
Uppfært kl. 20:05:
Leiðrétting á athugasemd Landspítala vegna fréttaflutnings 15. október 2020 um að nefúði komi hugsanlega í veg fyrir COVID-19 sjúkdóm.
Landspítali er háskólasjúkrahús. Auk þess að veita heilbrigðisþjónustu, sinnir starfsfólk spítalans margháttaðu vísindastarfi í samvinnu við innlenda og erlenda aðila, í samræmi við tilskilin leyfi siðanefnda og fleiri aðila. Vísindastarf fjallar um hið óþekkta, í þeim tilgangi að upplýsa það sem ekki er vitað og afla nýrrar þekkingar. Áhrif nefúða sem fjallað var um í fréttum gærdagsins eru, eftir því sem Landspítala er kunnugt um, óþekkt. Umfjöllunin kemur Landspítala á óvart.
Eftir ábendingu Kerecis er síðasta setning tilkynningar Landspítala frá því fyrr í dag, 16. október 2020, felld út: "Eins og flestum er kunnugt, þurfa niðurstöður rannsókna í mönnum ávallt að liggja fyrir áður en fullyrt er um gagnsemi nýrra meðferða". Ástæða þess er sú, að þarna er um að ræða vöru sem flokkast undir lækningatæki en ekki lyf. Landspítali biðst velvirðingar á þessu.