Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavef spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
Engar sérstakar tilkynningar í dag.
1. Á Landspítala eru nú:
27 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 61 alls frá upphafi þriðju bylgju faraldursins.
- Þar af eru nú 4 á gjörgæslu og 2 þeirra í öndunarvél
1 sjúklingur hefur látist á Landspítala í þriðju bylgju faraldursins
1.222 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 218 börn
52 starfsmenn eru í sóttkví A
20 starfsmenn eru í einangrun