Frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítala:
Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavef spítalans.
Tilkynningar og áréttingar dagsins
1. Skurðstofur á Landspítala
Skurðstofustarfsemi hefur verið aukin á Landspítala frá því sem var í síðustu viku og er stefnt að frekari opnun skurðstofa í næstu viku, ef þróun faraldursins leyfir.
2. Á Landspítala eru nú:
25 sjúklingar inniliggjandi vegna COVID19 – 69 alls frá upphafi þriðju bylgju faraldursins.
- Þar af eru nú 3 á gjörgæslu og 1 þeirra í öndunarvél
1 sjúklingur hefur látist á Landspítala í III bylgju faraldursins
1.255 sjúklingar eru í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 204 börn
44 starfsmenn eru í sóttkví A
23 starfsmenn eru í einangrun